I am Legend :D
Könnun
Veist þú eitthvað?

Klukkan
01.01.2009 14:48:15 / cossie

Mótmæli í reykjavík

Mótmælin eru farin að færst í öfgarnar fólk er orðið pisst! Ég var að djamma heima hjá einni af
óeyrðarlögreglu mönnunum sem er góður vinur minn og ég nýt því tveggja sjónarhorna.
Lögreglan er ekkert á móti mótmælendum persónulega, en þegar þetta er farið að verða hættulegt þá skerast þeir
í leikinn, því miður þá eru afleiðingar eins og í gær sem er ekkert annað en grátlegt :( Þessi vinur minn var með svona kylfu heima hjá sér í gær (nýárs) og ég bað hann (athugið að ég bað hann um) að slá mig laust með kylfuni sinni í öxlina sem og hann gerði
þar sem ég bað hann um að gera þetta. ÞETTA ER VIÐBJÓÐSLEGA SÁRT OG ÞUNGT HÖGG sem kemur af þessum kylfum, ekki skrítið að löggan þurfi ekki á byssum að halda.
En þetta er eins og ég sagði, Eggin verða að grjóti (múrsteinum í þessu tilfelli), svo styttist í að grjótið verði að Molitof kokteilum (bensínsprengjum).
Og ég veit að lögreglan hefur sömu áhyggjur, hvað gerist þá? Þá förum við að sjá aukna slysatíðni á mótmælum og þá verður fólk verulega reitt.
 Hér er myndband af mótmælunum:

http://salvor.blog.is/img/flvplayer.swf?file=http://salvor.blog.is/users/7c/salvor/videos/6589-1404.flv&autostart=true&fs=true

En að lokum vill ég segja
Gleðilegt nýtt ár!
Njótum 2009 og megi það vera miklu betra en 2008 :)

Með Kveðju
Ólafur Örn

» 1 hafa sagt sína skoðun

03.12.2008 12:45:04 / cossie

Getur það verið?

Jæja lesandi góður, á meðan ég tek mér frí frá próflestri þá langar mig að ræða tvennt, annað kemur kreppuni við og hitt læknaframförum. 

VERÐTRYGGING er verkfæri andskotans og allt sem að lífeyrissjóðir hafa sagt við þig eru lygar og kjaftæði!
Verðtryggingin er ekkert annað en prentun á peningum sem eru ekki til og stenst engin rög. Ef hún hverfur missa ellilífeyrisþegar ekki neitt, lífeyrissjóðirnir fá bara ekki sömu miljarðana inn til sín. Það breytir  ekki því að þegar að við byrjum að fá úr lífeyrissjóði okkar sem að við borgum alla æfi þá göngum við varla á brot af því sem við höfum borgað, svo einfalt er það. Svo þegar lífeyrisþegi fellur frá þá eiga Lífeyrissjóðirnir þennan pening áfram sem getur skipt miljónum. Fynnst ykkur enþá að hún egi að vera þarna?
Ok, lestu þá þetta www.karlol.blog.is 

En hitt á skemmtilegri nótum.

LÆKNING
Lækning hefur fundist og er á síðasta tilraunarstigi fyrir Mýelín skaða (það sem MS veldur) Ef það er hægt að laga Mýelín þá get ég og svo margir aðrir farið að lifa fullkomlega eðlilegu lífi aftur. www.myelinrepair.org 
Það myndi gera mér og öllum öðrum sem þurfa að tala og hlusta á mig lífið miklu auðveldara :haha: Smá spaug..
En það myndi allavega aðvelda mér talsvert.. þá myndi þreytan minnka til muna, og ég gæti kannski farið að hugsa rétt aftur :D Þetta hljómar bara vel.
Ég vona alveg innilega að þetta sé rétt og sé raunin.
Ég vona að þetta komi til íslands sem allra allra fyrst, ef það á að vera eitthvað crap með þetta þá fer ég bara út og næ í það sjálfur :D

tootle.. oo

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.11.2008 22:23:58 / cossie

Jæja krakkar

Jæja, það var djamm á föstudaginn ssl. og það var alveg stuð :) það sem ég man eftir.
Ég stútaði að vísu GSM símanum mínum með númerinu hjá stelpuni sem ég fékk 8|, That sucks :( En það reddast alltsaman.

Kreppan er komin til mín, og það er ekki hægt að segja mér að hún sé ekki komin til ykkar afþví það eru öll verð að hækka.
En verður maður ekki bara að vera sparsamur og hafa sig hægan þegar að svoleiðis gerist..

En ég ætla að lúlla, nenni ekki að vaka meir í bili

blesuð

p.s. Stefán Ólafsson á alþingi :P

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.10.2008 12:43:37 / cossie

This sucks!

Hahaha, ég Guðni, Hemmi og Guðný fórum í bíó um daginn á Pineapple Express ekki vitandi það að þetta væri frumsýning á myndinni.. ÞAÐ VAR PAKKAÐ ÞARNA! En við létum ekki deigann síga og settumst bara á fremstu röð og horfðum á þessa alveg drep fyndnu mynd :lol: Seriously, það verða allir að fá að sjá hana :lol: En þar sem við sátum fremst þá gat ég ekki annað en sagt "This sucks" hehehe

Þekkiði tilfinninguna að ykkur langar í e-ð en þorið ekki að biðja um eða nálgast það? Well that feeling also SUCKS! :^)

Ég og Harpa erum alveg closer than ever (ef það er hægt) :) EKKI SAMAN! Bestu vinir :) Virðist mikið vera af því að fólk haldi að við séum saman.. well I'm sorry to disapoint but.. were not!

Ég er líka búinn að vera svo ómögulegur í skapinu síðan að ákveðin manneskja kom mér á snúning á ákveðnu djammi! Tilheyrir að vísu ekki vinahópnum en ég er alveg búinn að vera aðeins meira en pirraður síðan.. veit ekki einusinni afhverju :evil: :| :s

En allavega.. ég veit ekki hvað ég get skrifað meira þannig að

ciao bello!

» 1 hafa sagt sína skoðun

21.08.2008 01:44:17 / cossie

Jæja krakkar

Jæja, brúðkaupið var algjör snilld, og eftirá líka :D var alveg haug ölvaður :D, geðveikt gaman alveg.

En on to other things, ég er að fara byrja í hí and am way in over my head :P veit voða lítið hvað er að gerast en ætla svona að reyna að fá smá hjálp.. ætti að geta gengið :) Er búinn að tala við Hörpu þessa elsku og er að leita að hjálp námsráðgjafa :D þetta reddast eins og einhver sagði :P

Svona til að segja satt er ég soltið hugmyndasnauður um hvað ég á að blogga..
Já, ég var í fréttunum um daginn og ég er búinn að finna nýtt óviðurkennt Lyf.
Það heiti Low Dose Naltrexone (LDN  í stuttu máli) En þetta er virkar þannig að Heróin fíklar fá þetta þegar þeir eru í afeitrun, virkar þannig að það blokkar endorfín mótakarana þannig að þegar fíkillinn sprautar sig þá fær hann ekki þessi viðbrögð sem hann leitar eftir. En einhverra hluta vegna þá eru MS sjúklingar að taka þetta í mikið minna magni, eða 3mg á móti þeim 50mg sem fíklar fá, þetta er víst að stoppa einkenni sjúkdómsins og jafnvel laga skaða sem hefur orðið. Þannig það væri gaman að fá að rannsaka þetta en það kemur enginn til með að leggja peninga í það þar sem að þetta kostar skít og ekki neitt, e-ð um 3 - 5000kr á mánuði. En ég get fengið þetta en það er soltið mikil áhætta að hætta á meðferðinni sem ég er á og fara á eitthvað sem er bara tilraunar :$ hhmmmmm?

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.08.2008 13:42:20 / cossie

í dag



Brúðkaup Gumma Kalla og Rögnu í dag :) ætti að vera gaman :)

Ég hef það mjög gott bara.. var fréttaefni um daginn á stöð 2 :)
Geðveikt sæt stelpa sem tók viðtalið :P var alveg á mörkunum að roðna :P hehehe

En ég þarf að gera mig reddy

Segið bara til ef þið viljið vita meira ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

14.06.2008 02:07:36 / cossie

þetta er síðasta færslan mín hér.. allavega í bili

Þar sem ég nenni þessu eginlega ekki lengur, er alltaf að gera eitthvað annað af mér þá verður þetta sennilega síðasta færslan mín á þessu bloggi.. allavega í bili, nenni ekki að blogga og fá engin comment eða neitt :þ

En allavega þá gengur mér bara askoti vel í endurhæfingu, búinn að ná upp smá þyngd.. Dóri sagði að ég væri feitur (búhúhú :þ ) hehehe
Það er bara fínt, svo er fólk að tala um að það sé bara allt annað að sjá mig.. og mér líður líka bara miklu betur :d Ekkert vesen með bakið lengur (það vill vera vesen þegar að fólk stendur vitlaust)...

Golfinn er að standa sig alveg konunglega, en ég er ekkert alveg að sætta mig við bensínverðið STUPID BSTDS :evil: En ég hef ekki enþá ákveðið að selja hann, ætla að halda honum eitthvað áfram allavega, sé hvernig það er þegar að skólinn byrjar.
Talandi um skólann, ég er semsagt búinn að sækja um í HR í Tölvufræði, ákvað að prófa það og sona sigrast á Grýluni minni ;) Pabbi og Gummi Kalli segja allavega að þetta sé áhugavert.

En núna ætla ég að fara að lúlla... ég er frekar þreyttur þannig að ég bíð góða nótt :)

TATA ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.06.2008 19:59:35 / cossie

Hmm??

Jæja, strákurinn er bara kominn á reykjalund, loksins :P
Er með góðan sjúkraþjálfara sem er alveg að gera góða hluti til að koma
mér í betra form.. hún er núna að hjálpa mér með að laga á mér baki.. hún er ekki búin en komin langa leið með að rétta almennilega úr mér :) Eitt vandamálið hjá mér er að ég læsi hnjánum, og það hefur ekki góð áhrif á bakið.
EN ég er að verða betri og betri með hverjum deginum sem lýður.
Ég fór til sála í dag og hann sagði að ég væri sennilega jákvæðasti MS sjúklingur sem hann hefur hitt :lol:
Sem er gott :) I Try :D        

En ég er hugmyndasnauður eins og er :P

Bleble

» 2 hafa sagt sína skoðun

26.05.2008 01:20:05 / cossie

Nýstúdent hér ;)

Jæja, þá er það að baki eftir mikið "Blood, sweat and tears" en mér tókst að komast í gegnum skólann, útskriftina og djammið eftir það :d8)
Ég var svo allsvakalega hífaður að ég man.. nuf said :haha::^):haha:
Ég fékk fullt af æðislegum og fallegum gjöfum en ég ætla ekkert að vera telja það upp hér. Fólkið mitt var alveg æðislegt og veislan var alveg geggjuð :d
Núna tekur bara við Háskólinn en þar á undan er það Reykjalundur og ég bíð spenntur eftir að sjá hvað gerist með það 8)
Oddný var skemmtileg líka, hún stóð sig alveg eins og hetja og ekkert síður full en ég :þ

En jámm, nenni ekki meir í bili, ætla að leggja sig.

Bleble ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 09:42:57 / cossie

Hello ppl

Sælt veri fólkið... ákvað að taka aðeins til á blogginu og er búinn að eiða þónokkrum drep leiðinlegum færslum.
Jæja gott fólk, þá er ég búinn að fara 5x í mína blessuðu lyfjameðferð og so far gengur allt vel :haha:
Og já, ég hef fréttir að færa.. heldur betur :) Eftir mikið af blóði, svita og tárum þá hefur mér tekist það.. ÉG ER AÐ ÚTSKRIFAST 8|8|8|  Pæliði í þessu... ég kláraði þetta eftir alltsaman :d8):d OG oddný silja er að útskrifast líka :d þannig að það verður slegið saman í eina veislu :d
Ég er ekkert smá stoltur af sjálfum mér :d

En jæja, að frekari fréttum.. Þann annan júní fer ég á reykjalund í endurhæfingu, og vægast sagt hlakka þó nokkuð til :d Verður gaman að sjá hvað er hægt að laga og hvað er hægt að gera.
Annað... 28 júlý fæ ég gesti frá Svíþjóð, vinkona mín hún Caroline er að fara koma heimsækja mig ásamt vinkonu sinni. Ég ætla að sýna þeim aðeins af landinu og svo ætla ég að fara með þær á þjóðhátíð :d Já, og það á víst ekki að renna af okkur allan þann tíma sem hún verður hérna :d

OG aðrar fréttir, ég sótti um í tölvudeildinni í HR, verður gaman að sjá hvað kemur útúr því :)
Afhverju tölvur spyr kannski einhver, well, mig hefur alltaf langað að vita hvað pabbi gerir í vinnuni, auk þess þá hata ég tölvur þannig að ég ákvað að sigrast á því og verða betri en þær og læra almennilega á þær :d
En við sjáum hvernig það fer... vona bara að ég komist að þarna.

EN nú nenni ég ekki að blogga meira í bili... youre all up to date.. I think :þ

Buenos dios ;)

BOGMAÐUR 22. nóvember - 21. desember
Orka eldmerkisins þíns hitnar. Þú bræðir þig í gegnum lag af ís sem einhver hefur viðhaldið árum saman. Þú getur selt hvaða vöru eða hugmynd nú - svo góður ertu.
( www.mbl.is )

» 1 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  10  Alls: 12222
Klukkan
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 1 janúar